Ef svokallaður hemlaprófari fyrir ökutæki sem eru meira en 3,5 tonn að þyngd er ekki í skoðunarstöð eða
ekki verður komist í hann í þeirri sömu skoðunarstöð nema á ákveðnum tímum ársins og önnur skoðunarstöð
er ekki í nágrenninu þá er hægt að sækja um viðbótarfrest í tvo mánuði með því að tilkynna Sýslumanninum á
Vestfjörðum um þá ósk sína. Tilkynningin þarf að hafa borist áður en frestur til skoðunar rennur út og má vera
á rafrænu formi. Nánari upplýsingar má finna á vef sýslumanna.