Skráning hefur meðal annars áhrif á:
- Meðlag er greitt til lögheimilisforeldris.
- Lögheimilisforeldri getur farið fram á sérstakt framlag til framfærslu frá umgengnisforeldri.
- Barnabætur eru almennt greiddar til þess foreldris sem barnið á lögheimili hjá við árslok.
- Lögheimilisforeldri hjá hefur heimild til að taka afgerandi ákvarðanir um daglegt líf barnsins svo sem um val á leikskóla, grunnskóla, daggæslu, heilsugæslu og tómstundastarf. Foreldrar sem fara saman með forsjá barns skulu þó ávallt leitast við að hafa samráð um málefni barnsins.
- Lögheimilisforeldri getur ákveðið að flytja lögheimli sitt innanlands, og þar með lögheimli barnsins, án þess að afla samþykkis umgengnisforeldris.
- Barnið á rétt til þjónustu frá sveitarfélaginu þar sem það á lögheimili t.d. leikskóli, grunnskóli og félagsþjónusta.
- Opinber stuðningur eða réttur til þjónustu eða aðstoðar, kann að ráðast af lögheimili barns.
- Samþykki beggja foreldra með sameiginlega forsjá þarf til þess að barn fari til útlanda.
Hér má finna nánari upplýsingar um lögheimili barns og áhrif þess.