Ekki er tekið tillit til þess ef ökutæki eru biluð, eru á verkstæði eða ekki í notkun af öðrum ástæðum meðan þau eru skráð í umferð í ökutækjaskrá.
Til eru úrræði til að nota áður og forðast álagningu vanrækslugjalds:
1. Tímabundin skráning ökutækis úr umferð. Nálgast má beiðni um tímabundna skráningu ökutækis úr umferð á vef Samgöngustofu. Sé fallist á beiðni fær umsækjandi sendan miða til að líma á skráningarmerki ökutækisins með áletruninni "Notkun bönnuð". Einnig má óska tímabundinnar skráningar úr umferð í næstu skoðunarstofu.
2. Leggja skráningarmerki ökutækis inn hjá Samgöngustofu eða skoðunarstöð. Ef ökutæki verður ekki notað eða verður óskoðunarhæft til lengri eða skemmri tíma má leggja inn skráningarmerki þess, þ.e. fjarlægja þau af ökutækinu og afhenda í skoðunarstöð eða hjá Samgöngustofu.
Bíllinn minn er bilaður og hefur staðið fyrir utan verkstæði, get ég fengið vanrækslugjald fellt niður? Print
Búið til af: Inga Rós Georgsdóttir
Breytt: Mon, 7 Jún, 2021 kl 9:40 AM
Did you find it helpful? Yes No
Send feedbackÞví miður gátum við ekki verið hjálpleg. Hjálpaðu okkur að bæta þessa grein með athugasemdum þínum.