Hjón geta óskað eftir lögskilnaði án þess að skilja fyrst að borði og sæng hjá sýslumanni ef þau eru sammála um það og ef:
- annað hjóna hefur framið hjúskaparbrot.
- annað hjóna beitt hitt ofbeldi, getur sá sem fyrir því varð óskað lögskilnaðar.
- hjón hafa ekki búið saman í tvö ár vegna ósamlyndis getur hvort um sig farið fram á lögskilnað.
- annað hjóna var þegar gift þegar til hjúskapar var stofnað.
Hjónin þurfa að vera sammála um grundvöll skilnaðarins. Ef annað krefst lögskilnaðar á grundvelli hjúskaparbrots eða ofbeldis og hitt kannast ekki við háttsemina, eða vill ekki að lögskilnaður verði veittur á þeim grundvelli, þá fæst lögskilnaður ekki hjá sýslumanni. Hægt er að leita til dómstóla með kröfuna, eða skoða hvort grundvöllur sé fyrir samkomulagi um að fá skilnaða að borði og sæng.
Útgáfa leyfis til lögskilnaðar kostar 6.000 krónur.