Lögbókandavottun er opinber staðfesting á því efni sem er vottað. Lögbókandavottun jafngildir vottun tveggja manna um þá athöfn eða staðreynd sem hún tekur til. Algengustu staðfestingar lögbókanda (notarius publicus) eru:
- undirskrift
- undirritun erfðaskrár
- undirritun kaupmála
- rithandarsýnishorn
Staðfesting lögbókanda á undirskrift kostar 2.500 krónur.
Lögbókandavottun á erfðaskrá og samninga kostar 5.000 krónur.