Skilyrðin eru:

  • Að annað hjónaefna sé ekki afkomandi hins og að hjónaefnin séu ekki systkini. Það sama á við um kjörforeldri og kjörbarn nema ættleiðing hafi verið felld niður.
  • Meginregla er að hjónaefni þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
  • Hjónaefni þurfa að vera lögráða.
  • Fyrri hjúskap þarf að hafa verið lokið með formlegum hætti, með lögskilnaði hafi hjónaefni verið gift áður. Þau sem eru skilin að borði og sæng geta ekki gengið í hjónaband að nýju fyrr en við lögskilnað.

Fylla þarf út eyðublað, tilkynning um hjónavígslu og skila ásamt fylgigögnum. 


Uppfylli hjónaefni skilyrðin er gefið út könnunarvottorð með áritun á hjónavígsluna.  Hjónavígsla getur farið fram innan 30 daga frá útgáfu könnunarvottorðs.


Hér má finna allar nánari upplýsingar um hjónaband.