Nei, fyrst þarf að kanna hvort öll skilyrði eru uppfyllt en þau eru:
- Að annað hjónaefna sé ekki afkomandi hins og hjónaefni mega ekki vera systkin. Það sama á við um kjörforeldri og kjörbarn nema ættleiðing hafi verið felld niður.
- Meginregla er að hjónaefni þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
- Hjónaefni þurfa að vera lögráða.
- Fyrri hjúskap þarf að hafa verið lokið með formlegum hætti, með lögskilnaði hafi hjónaefni verið gift áður. Hjón sem eru skilin að borði og sæng geta ekki gengið í hjónaband að nýju fyrr en við lögskilnað.
Fylla þarf út eyðublað, tilkynning um hjónavígslu og skila ásamt fylgigögnum.
Uppfylli hjónaefni skilyrðin er gefið út könnunarvottorð með áritun á hjónavígsluna. Hjónavígsla getur farið fram innan 30 daga frá útgáfu könnunarvottorðs.