Ástæður sviptingar geta verið að viðkomandi er ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé.
- vegna andlegs eða líkamlegs vanþroska
- vegna ellisljóleika/heilabilunar
- vegna geðsjúkdóms
- vegna annars konar alvarlegs heilsubrests
- vegna ofdrykkju eða ofnotkunar ávana- og fíkniefna
Hér má finna nánari upplýsingar um lögræði, sjálfræði og fjárræði.