- Félagatal með nöfnum, heimilisföngum og kennitölum 25 einstaklinga sem allir eru hið minnsta 18 ára að aldri og búsettir á Íslandi og munu standa að félaginu.
- Upplýsingar um hver verður forstöðumaður félags og hverjir skipa stjórn þess. Forstöðumaður þarf að vera 25 ára gamall hið minnsta og búsettur á Íslandi.
- Útskýringar á hvaða trúarbrögð eða lífsskoðun það er sem félag er stofnað um, hvernig starfsemi félagsins verði háttað og hvernig það verði fjármagnað og ráðstöfun fjármuna þess.
- Lög og samþykktir félags.
- Útskýringar á því hvernig félagið muni standa að athöfnum eins og hjúskaparvígslu og nafngift.
Hér má finna nánari upplýsingar um skráningu trúfélags eða lífsskoðunarfélags.