Koma með tvær passamyndir og framvísa löggildu skilríki, ökuskírteini eða vegabréfi. Ef það er ekki til þurfa tveir vottar 18 ára eða eldri að koma með umsækjanda til að staðfesta hver hann er.
Hægt er að sækja um nafnskírteini hjá sýslumönnum eða Þjóðskrá Íslands. Allir íslenskir ríkisborgarar 14 ára og eldri, sem og erlendir ríkisborgarar sem hafa verið með lögheimili á Íslandi í samfellt 2 ár, geta fengið útgefið nafnskírteini.
Fylla þarf út umsóknarform. Fyrsta útgáfa nafnskírteinis er gjaldfrjáls.